Síðast uppfært (Fimmtudagur, 26. apríl 2012 11:28)

Skemmtilegakortið er sérhæft fríðindakort í ævintýraferðamennsku. Það veitir afsláttinn „tveir fyrir einn“ þ.e. að borga fullt gjald fyrir einn af tveimur gestum, ekkert fyrir hinn. Eigandinn skráir kennitölu sína aftan á kortið og aðeins hann getur nýtt það ásamt einum gesti.
Skemmtilegakortið er skemmtilegt og fallegt plastkort sem gefur ímyndunaraflinu lausann tauminn og veitir að auki afslátt af svölun ævintýraþrárinnar.
Skemmtilegakortið er lykill sem allir sem vilja kynnast ævintýralandinu Íslandi ættu að hafa innan handar.
Samstarfsaðilar Skemmtilegakortsins eru 30 ferðaþjónustuaðilar vítt og breytt um landið sem hafa margra ára reynslu í því framleiða ævintýri og adrenalín án þess að tefla lífi og limum í hættu.
Skemmtilegakortið bendir á að það er hægt að ferðast um Ísland allan ársins hring
Skemmtilegakortið, lykill að ævintýri – allt árið um kring
Á að ferðast innanlands?
Kajak, hestbak, jöklaganga, sjóstangaveiði, fjórhjólaferð, hvalaskoðun,
hellaskoðun eða gönguferð með leiðsögn, skíði, skemmtiferð um Reykjavík á reiðhjóli
Loksins er hægt að gera allt þetta og meira til á frábæru verði